Já svona er að vera aðstandandi...
Í morgun voru fréttirnar mjög góðar en nú eru þær ekki eins góðar.
Sunneva mín sveiflast eins og aðrir fíklar. Hún hringdi rétt áðan og vill bara hætta í meðferðinni og telur sig ekki eiga séns. Þessi brotna sjálfsmynd í upphafi edrúgöngu og erfiðu tilfinningarnar herja á hana. Ég reyndi að hvetja hana til þess að gefast ekki upp, til að gefa sér séns og þegar ég var orðin þreytt á neikvæðu staðhæfingunum þá bara sagði ég henni að ég gæti ekki gert neitt í stöðunni og skellti á:/
Nú vona ég bara að hún haldist inni og snúi baráttu þrekinu í að gefa sér séns á meðan líðanin er ekki hliðholl henni.
Yfir til þín Guð.
Sendi til þín vænan kærleiksskammt. Svona eins og þú hefur svo oft sent mér.
ReplyDeleteKærleiksknús.Stína
knús frá mér.
ReplyDeleteVonandi verður Sunneva á betri stað með sjálfa sig næst þegar þú heyrir frá henni.
knús og kveðja,Birgitta